29.4.2009 | 11:02
Heyrðu, heyrðu
Ég er að velta því fyrir mér hvenær menn byrjuðu að svara öllum spurningum með heyrðu.
Þetta tröllríður öllu nú til dags. þegar ég var til sjós fyrir mörgum árum minnist ég þess að í talstöðva í samskiptum hófu menn gjarnan svarið á þennan veg. Dæmi, Jón hvað ert þú að nota mikinn vír þarna úti í kantinum, svar heyrðu Davíð ég er með 250 faðma.
Hvernig þetta hefur orðið svo algengt sem raun ber vitni í almennu máli skil ég ekki, eftilvill eru menn og konur að kaupa sér frest á svari umhugsunarfrest. ÉG hef frekar vanist því að þetta orð sé notað í samræðum vilji menn grípa frammí eða komast að með sýna skoðun.
'I IDOL þætti nýverið voru keppendur spurð um hve stór páskaegg þau hefðu fengið öll svöruðu heyrðu ég fékk, þá hljóðaði næsta spurning og hvað stóð á málshætti, og sagan endurtók sig. Jón 'Olafsson sá ágæti maður sem er einn af dómurum sá ástæðu til að vekja máls á þessu.
Fyrir mörgum árum var í tísku að hefja svar með því að segja , "ég myndi segja" þetta og hitt, þetta er nú að mestu horfið, sem betur fer, og vonandi fer eins fyrir heyrðu.
Annars er ég ekki mikill íslensku maður en hef örlitla málvitund og læt fara í taugarnar á mér auðheyranlegar ambögur, sem eru reyndar orðnar all algengar í fjölmiðlum þrátt fyrir að starfandi séu málfarsráðunautar td á RUV. Þar glymur alla daga að fréttir séu samkvæmt lögreglunni samkvæmt veðurstofu osfv. Ekki samkv heimildum frá viðkomandi, eða einfaldlega "að sögn" Þeir tímar koma að ég velti fyrir mér til hvers td ruv sé með málfarsráðunaut.
Heyrt hef ég að menn telji að málið sé í þróun og ekkert sé eðlilegra , ekki veit ég en það kann að vera en læt þetta fara í taugarnar á mér.
kv sn
Flokkur: Menntun og skóli | Facebook
Um bloggið
Snorri H Jóhannesson
Færsluflokkar
Bloggvinir
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 1
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 1
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Heyrðu, ég er algerlega sammála þér!
Hjörleifur Jóhannesson, 30.4.2009 kl. 11:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.